táp sjúkraþjálfun
Táp Sjúkraþjálfun er staðsett í suðurhluta Kópavogs og því er stutt fyrir íbúa Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs og Breiðholts að sækja þjónustu þangað.
Fyrirtækið tók til starfa 1998 og var fyrstu 11 árin staðsett í Hlíðasmára 14. Í nóvember 2009 fluttist fyrirtækið í nýlegri og betri aðstöðu að Hlíðasmára 15 þar sem það var staðsett á 1. hæð með gott aðgengi. Þann 9. september 2019 fluttist stofan svo í stærra og betra húsnæði að Holtasmára 1. Er nú betri aðstaða til æfinga og hóptíma.
Eigendur Táps eru Joost van Erven, Unnur Sandholt og Þorgerður Sigurðardóttir.
Hjá Táp starfa 12 löggiltir sjúkraþjálfarar með áralanga reynslu og margvíslega sérhæfingu í meðferð sjúklinga.